Jólasöngvar , nótur
3.850 kr
Ekki á lager
Vörunúmer: IS-JOLASONGVNOT
93 íslensk og erlend jóla- og áramótalög fyrir einstaklings- eða samsöng og hljóðfæraleik
Bækurnar Jólasöngvar – Nótur/Textar eru samhæfð safnrit með sönglög jóla og áramóta flokkuð í AÐVENTU, JÓLADANSA, JÓLAHÁTÍÐ og ÁRAMÓT. Nótnabókin er hugsuð fyrir hljóðfæraleik og söngstjórn en textabókin fyrir almennan söng sömu laga. Bækurnar innihalda samhæft lagaval, númeraröð og kafla. Öll textaerindi og aukatextar eru í textabókinni en í nótnabókinni aðeins þau erindi sem pláss er fyrir. Laglínunótur 93 söngva með bókstafahljómum eru í nótnabókinni og eru 118 söngtextar við þau sömu lög í textabókinni. Bókstafahljómar eru yfir laginu, oftast í samræmi við frumheimild. Við mörg laganna í nótnabókinni er getið um uppruna svo sem erlent heiti lags ásamt heimildatilvísunum. Heimildaskrá er aftast í nótnabókinni ásamt efnisyfirliti fyrir báðar bækur með lagaheitum, upphöfum, viðkvæðum og laganúmerum.
Efnisval og framsetning: Gylfi Garðarsson