Hjördís Pétursdóttir - Nótnahefti
1.590 kr
Á lager
Vörunúmer: IS-HJORDIS
Hjördís Pétursdóttir lærði ung að leika á píanó og byrjaði
snemma að semja dægurlög. Hún var um tíma formaður Félags
Íslenzkra dægurlagahöfunda og var sem slíkur ötull
baráttumaður fyrir réttindum þeirra s.s. fyrir lagasetningu til
að tryggja að höfundar dægurlaga og dægurlagatexta fengju
greitt fyrir flutning á verkum sínum. Alls samdi Hjördís tuttugu
dægurlög eða sönglög. Þar af hafa fimm komið út á plötu; Eldur
í öskunni leynist, Í Reykjavík, Jenka, Lífsgleði, og
Þórshafnarskottís. Þetta nótnahefti er gefið út í tilefni þess að
Hjördís hefði orðið 100 ára í ár. Það er von okkar sem að því
stöndum að lögin verði flutt í fjölbreyttum útsetningum enda
teljum við þau eiga fullt erindi til áhugafólks um tónlist.